Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata, leggja fram svohljóðandi tillögu um bættar göngutengingar í Gamla-Vesturbænum
Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 113
8. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Skipulags og samgönguráð felur umhverfis- og skipulagssviði að skoða leiðir til að bæta tengingar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur milli Gamla-Vesturbæjarins og Kvosarinnar. Skoðaðar verða bættar göngutengingar í austur-vesturátt, til dæmis meðfram Mýrargötu, Nýlendugötu, Vesturgötu sem og meðfram ströndinni. Möguleikar til að gera götur á svæðinu að göngu- eða vistgötum verða kortlagðir og gerð verði áætlun um eflingu og endurhönnun borgargatna.   Tillögunni fylgir greinargerð.   Frestað.