Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn, um lagfæringar á gangstéttarbrúnum við gönguþveranir í Breiðholti
Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 113
8. september, 2021
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um hvenær til standi að lagfæra gangstéttarbrúnir sem og aflíðandi halla frá gangstétt út á gönguþveranir í Efra Breiðholti. Þetta er sérstaklega slæmt við gatnamót  Breiðholtsbrautar og Jafnasels en einnig víða annars staðar í Breiðholti.
Svar

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds.