Laugavegur 47-51, tvö stæði fyrir hreyfihamlaða, tillaga - USK20210210121
Laugavegur 47
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 107
9. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, dags. 2. júní 2021:
Svar

Lagt er til við skipulags- og samgönguráð að samþykkt verði að eftirfarandi stæði verði merkt sérstaklega fyrir hreyfihamlaða:- Tvö stæði á Laugavegi næst Frakkastíg, við hús nr. 47-51.

Bókanir og gagnbókanir
  • Sjálfstæðisflokkur
    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skipulags- og samgönguráði fagna því að verið sé að bæta aðgengi hreyfihamlaðra með því að staðsetja stæði á jafnsléttu en ekki í halla eins og nú er á þessu svæði. Mikilvægt er að gott samráð sé haft við Öryrkjabandalagið og hagsmunasamtök hreyfihamlaðra við staðsetningu P - merktra bílastæða. Aðgengi hreyfihamlaðra hefur verið takmarkað að miðborginni og fara þarf í heildstæða vinnu til að auka það enn frekar.
  • Flokkur fólksins
    Lagt er til að samþykkt verði bílastæði við Skólavörðustíg og Laugaveg sem verður sérmerkt fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar hverju einasta stæði sem samþykkt er fyrir hreyfihamlaða og vonar fulltrúi Flokks fólksins að ákvörðun um þessi stæði hafi verið tekin í  samráði við hagsmunasamtök fatlaðra. Þessi málaflokkur hefur orðið undir hjá  meirihlutanum í borginni og við ákvörðun að loka fyrir umferð bíla og gera göngugötur þá má segja að fatlaðir og þeir sem eiga erfitt um gang hafa verið skildir eftir úti í kuldanum. Almennt er  aðgengismál fatlaðra  í miðbænum erfiðleikum háð og er í raun  kapituli út af fyrir sig. Því miður er það þannig að margir fatlaðir finna sigi ekki lengur velkomin í bæinn og fara ekki þangað nema tilneyddir.
101 Reykjavík
Landnúmer: 101515 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017562