13. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu,
Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 70
6. maí, 2020
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Í aðgerðarpakka borgarráðs vegna neikvæðra efnahagslegra áhrifa Covid-19 faraldursins er lögð til flýting fjárfestinga og viðhalds á vegum Reykjavíkurborgar til að auka atvinnu og umsvif í efnahagslífinu. Gert er ráð fyrir viðbótarfjárfestingum borgarsjóðs og B- hluta fyrirtækja geti samanlagt orðið um 5 milljarðar króna á árinu og enn meiri árið 2021. Í ljósi þess er því lagt til að farið verði í lagfæringar og endurbætur á göngu- og hjólastígum borgarinnar sem margir hverjir eru komnir á löngu tímabært viðhald. Ennfremur er lagt til að farið verði í almenna hreinsun og viðhald á útivistarsvæðum í borgarlandinu. Þá er  lagt til að farið verði í aukin þrif hreinsun og viðhald gatna. 
Svar

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, Skrifstofu framkvæmda og viðhalds.

Komur og brottfarir
  • - Kl. 12:33 víkur Valgerður Sigurðardóttir af fundi
  • - Kl. 12:41 víkur Hjálmar Sveinsson af fundi.
  • - Kl. 12:44 víkur Katrín Atladóttir af fundi.
  • - Kl. 12:50 víkur Aron Leví Beck af fundi.