Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins, Laugarásvegur (USK2019100036)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 54
13. nóvember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Samkvæmt ábendingu er undirrituðum barst er sá hluti Laugarásvegs er liggur að húsum nr. 39,41,43 og 45 ómalbikaður, holóttur og slæmur yfirferðar. 1. Er í bígerð að bæta úr þessu? 2. Með hvaða hætti á endurbæta götuhlutann? 3. Hvenær mega íbúar reikna með að endurbætur götuhlutans hefjist? 4. Hvenær mega íbúar reikna með að endurbótum götuhlutans ljúki? Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 28. október 2019.