Tillaga frá áheyrnarfulltrúa Flokki fólksins, Farartálmar og flöskuhálsar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 41
26. júní, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram eftirfarandi tillaga  áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins með eftirfarandi tillögu: 
Svar

Farartálmar og flöskuhálsar eru víða í borginni á álagstímum.  Einn er sá flöskuháls sem tefur alla þá sem upp í Efra Breiðholt  ætla á álagstímum.  Draga má verulega úr þeim töfum sem vegfarendur upplifa og þurfa að sæta á leið sinni upp í Efra Breiðholt.  Þegar ekið er upp Stekkjabakka til austurs og síðan beygt til hægri við Höfðabakkann í átt til Efra Breiðholts  eru þar iðulega miklar umferðarteppur á álagstímum.  Vegfarendur sem ætla í átt að Höfða og Árbæjarhverfi fara þessa leið og stífla alla umferð í Efra Breiðholtið.  Tillaga Flokks fólksins er að unnið verði að úrbótum með því að gerð verði  frárein sem byrjar vestast á Stekkjabakkanum og upp á Höfðabakkann og þar með yrði leiðin greið fyrir vegfarendur sem þurfa upp í Efra Breiðholt. Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs leggur til að tillagan verði felld. Tillaga felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Pírata, fulltrúa Samfylkingarinnar og fulltrúa Viðreisnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.