Steinbryggja, Heimild til endanlegrar verkhönnunar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 35
17. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 15. apríl 2019 þar sem óskað er heimildar til að ljúka verkhönnun á Steinbryggju á grundvelli kynntrar tillögu. Samþykkt.
Svar

Skipulags- og samgönguráð ásamt áheyrnarfulltrúum ráðsins bóka.Það er sannkallað ánægjuefni að sjá hversu vel miðar að útfæra verkhönnun á varðveislu gömlu steinbryggjunnar. Hér skapast einstakt tækifæri til að flétta saman merkar minjar úr atvinnusögu borgarinnar við uppbyggingu nýs hafnarhverfis.