Víðinesvegur 22, breyting á skilmálum deiliskipulagsBjörgun ehf., Völuteigi 9, 270 MosfellsbærHrafnhildur Brynjólfsdóttir, Efstasund 79, 104 Reykjavík
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 110
7. júlí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Hrafnhildar Brynjólfsdóttur f.h. eigenda dags. 23. júní 2021 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags fyrir Iðnaðarsvæði við Álfsnesvík vegna lóðarinnar nr. 22 við Víðinesveg. Í breytingunni felst að mesta hæð tækja, skýla og hauga á lóð verði 14 m í stað 12 m, samkvæmt greinargerð tillögu Alta dags 25. júní 2021.
Svar

Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs.