Nýr Landspítali við Hringbraut, breyting á deiliskipulagiNýr Landspítali ohf., Skúlagötu 21, 101 ReykjavíkKanon arkitektar ehf, Laugavegi 26, 101 Reykjavík
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 105
26. maí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Þorkels Magnússonar dags. 6. maí 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut. Í breytingunni felst m.a. að koma fyrir ljósgarði með stoðvegg við Burkna- og Njólagötu, rampi fyrir aðkomu í kjallara, hækka rannsóknarhús við Hvannagötu og færsla rafstöðvar o.fl. samkvæmt uppdr. Kanon arkitekta ehf. dags. 5. maí 2021. 
Svar

Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs.

Gestir
Hildur Gunnarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.