Vesturgata 67, breyting á deiliskipulagi
Vesturgata 67 (01.133.1)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 68
15. apríl, 2020
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð er fram umsókn Félagsbústaða dags. 23. mars 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi milli Seljavegar og Ánanausta vegna lóðarinnar nr. 67 við Vesturgötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit lítillega til suðurs að garði, heimilt verði að byggja 4 hæðir í stað 2,5 hæðir, svalir megi ná 1,7 metra út fyrir byggingarreit að garði, götuhlið hússins skal taka tillit til aðliggjandi húsa eins og kostur er, lyftuhús má ná 0,8 metra upp fyrir hámarkskvóta vegghæðar, lóð er stækkuð að framanverðu og þar heimilt að setja bílastæði fyrir hreyfihamlaða, sorpgerði og gróður, byggingarmagn eykst og fjöldi íbúða verður 6 ásamt sameiginlegum rýmum á jarðhæð, samkvæmt uppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 3. apríl 2020.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Vísað til borgarráðs.

Gestir
Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
101 Reykjavík
Landnúmer: 100224 → skrá.is
Hnitnúmer: 10122137