Bergstaðastræti 18, breyting á skilmálum deiliskipulags
Bergstaðastræti 18 (01.184.0)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 62
5. febrúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð er fram umsókn Richards Ólafs Briem dags. 18. desember 2019 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.184.0 vegna lóðarinnar nr. 18 við Bergstaðastræti. Í breytingunni felst að breytt er texta þannig að ekki verði einungis heimilt að koma fyrir aðfluttu húsi á lóðinni heldur einnig heimilt að byggja þar staðbyggt hús, samkvæmt tillögu VA arkitekta ehf. dags. 18. desember 2019. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2020. Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2020. Vísað til borgarráðs.
101 Reykjavík
Landnúmer: 208935 → skrá.is
Hnitnúmer: 10109055