Tryggvagata 13, breyting á skilmálum deiliskipulags
Tryggvagata 13 (01.117.4)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Hildigunnur Haraldsdóttir
Skipulags- og samgönguráð nr. 62
5. febrúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð er fram umsókn Hildigunnar Haraldsdóttur dags. 29. nóvember 2019 ásamt bréfi Hildigunnar Haraldsdóttur og Þóris Gunnarssonar dags. 28. nóvember 2019 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags fyrir Tryggvagötu 13. Í breytingunni felst að heimilt er að nota allt að 1048,8 fm. íbúðarhúsnæðis eða allt að 23% af heimilu byggingarmagni ofan jarðar á lóð tímabundið sem hótelíbúðir, samkvæmt tillögu ódags. Einnig eru lögð fram bréf Hildigunnar Haraldsdóttur og Þóris Gunnarssonar dags. 31. júlí 2018, 1. nóvember 2018 og 20. desember 2018. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2020. Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2020. Tillögunni er synjað með fjórum atkvæðum Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, greiða atkvæði með tillögunni. Vísað til borgarráðs.
Svar

Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins bókar:

Gestir
Hildur Gunnarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
101 Reykjavík
Landnúmer: 222370 → skrá.is
Hnitnúmer: 10111852