Lögð fram tillaga skrifstofu framkvæmda og viðhalds varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholts 1, dagsett 06.01.2020. Í breytingunni felst að færa núverandi grenndarstöð sem er á bílastæði samsíða Arnarbakka á núverandi snúningshaus við Leirubakka, samkvæmt uppdr.
Hornsteina arkitekta ehf.
dags. 24. september 2019. Gert ráð fyrir að framlengja gangstétt við núverandi bílastæði að grenndarstöðinni og staðsetja upplýsingaskilti.