Laugarnes, minningarreitur um Holdsveikraspítalann
Laugarnesvegur 34 (01.328.5)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Magnús Sædal Svavarsson
Skipulags- og samgönguráð nr. 47
11. september, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Magnúsar Sædals Svavarssonar f.h. Oddfellowreglunnar Ob. Petrusar, dags. 26. mars 2019 varðandi áform um gerð minningarreits um Holdsveikraspítalann í Laugarnesi. Tillagan hefur verið unnin í samstarfi við Minjastofnun Íslands og Borgarsögusafn Reykjavíkur. Einnig eru lagðir fram uppdrættir Landslags dags. 19. mars 2019. Einnig er lögð fram umsögn/svar deildarstjóra náttúru og garða hjá skrifstofu Umhverfisgæða Reykjavíkur dags. 13. ágúst 2019. Kynnt.
Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
105 Reykjavík
Landnúmer: 104527 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016743