Kjalarnes, Esjumelar, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 30
6. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Esjumela á Kjalarnesi. Í breytingunni felst í að rýmka heimildir iðnaðartarfsemi á tiltekinni lóð í samræmi við aðalskipulagsbreytingu fyrir svæðið sem verður auglýst samhliða o.fl. Jafnframt er gert ráð fyrir lóð undir veitumannvirki við norðvesturenda svæðisins, samkvæmt uppdr. Landmótunar dags. 13. febrúar 2019. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs
Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.