Kjalarnes, Hólaland, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 30
6. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 25. janúar 2019 þar sem gerðar eru athugasemdir við deiliskipulagið sem felast í að stofnunin telur deiliskipulagið ekki samræmast Aðalskipulagsi Reykjavíkur 2010-2030, ekki liggi fyrir hvernig veitum verði háttað fyrir lóðina og ekki liggi fyrir umsögn heilbrigðiseftirlits varðandi mögulegar lausnir ef ekki verður hægt að tengjast fyrirliggjandi veitum. Einnig bendir stofnunin á mikilvægi þess að samningar liggi fyrir um aðkomu og sama á við um veitur eftir atvikum. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi Skipulagsstofnunar dags. 14. febrúar 2019, umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjvíkur dags. 18. febrúar 2019, lagf. uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 11. september 2018 breytt 18. febrúar 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2019. Samþykkt með vísan í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2019. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.