Héðinsreitur, reitur 1.130.1, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 42
3. júlí, 2019
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. júní 2019 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 13. júní 2019, umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 4. apríl 2019,umsögn Vegagerðarinnar dags. 4. apríl 2019. Einnig lagður fram uppdráttur og greinargerð Teikn arkitektarþjónustu ehf. dags. 20. desember 2018, síðast breytt 28. júní 2019 og hönnunarbók og fylgigögn dags. 20. desember 2018. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. júní 2019.  Skipulags- og samgönguráð samþykkir þau viðbrögð og breytingar skipulagsfulltrúa, sbr. umsögn dags. 28. júní 2019, við athugasemdum Skipulagsstofnunar sem komu fram í bréfi dags. 13. júní 2019.
Svar

Vísað til borgarráðs.

Gestir
Jón Kjartan Ágústsson, verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.