Háskólinn í Reykjavík, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 42
3. júlí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 2. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskólans í Reykjavík. Í breytingunni felst að afmarkaðir eru þrír byggingarreitir fyrir hjólaskýli á lóð, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 26. júní 2019.  Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs (nú skipulags- og samgönguráðs) án staðfestingar borgarráðs.