breyting á deiliskipulagi
Langholtsvegur 43
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 499
11. júlí, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ljóssins, sjálfseignarstofnun, dags. 25. apríl 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 43 við Langholtsveg. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og aukning á nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 22. maí 2014. Einnig er lagt fram bréf Ljóssins dags. í maí 2014. Umsókninni var frestað og er nú lögð fram að nýju. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. júní til og með 4. júlí 2014. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

104 Reykjavík
Landnúmer: 104392 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015063