(fsp) - Ofanábygging
Laufásvegur 45B
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 499
11. júlí, 2014
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. júní 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. apríl 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja íbúðarherbergi og svalir ofan á einbýlishúsið á lóðinni nr. 45B við Laufásveg. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. maí 2014 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 29. maí 2014.
Svar

Ekki er gerð athugasemd við erindið.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102178 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015920