Nýtt geymsluhús (mhl.02)
Síðumúli 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 872
10. júní, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. apríl 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja geymslu sem verður mhl. 02, suðvestan megin við mhl. 01 og gera glugga á norðvesturhlið og suðvesturhlið húss á lóð nr. 10 við Síðumúla. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2022. Lagt fram að nýju ásamt lagfærðum uppdráttum dags. 9. júní 2022.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Síðumúla 8 og 12.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103798 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015191