breyting á deiliskipulagi
Hrísateigur 18
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 872
10. júní, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Magnúsar Alberts Jenssonar dags. 4. febrúar 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis norðan Sundlaugavegar vegna lóðarinnar nr. 18 við Hrísateig. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður til norðausturs og heimilt er að vera með svalir og stiga niður í garð á suðausturgafli hússins ásamt því að breyta bílskúrum á lóð í vinnustofur/geymslur, samkvæmt uppdr. teiknistofu Magnúsar Jenssonar dags. 4. febrúar 2022. Tillaga var grenndarkynnt frá 9. maí 2022 til og með 7. júní 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104085 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020713