Áfangaheimili fyrir konur
Njálsgata 65
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynning er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka svalir, gera nýjan flóttastiga, breyta útitröppum og innra skipulagi og innrétta þrettán íbúða áfangaheimili í húsi á lóð nr. 65 við Njálsgötu. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. maí 2021 til og með 23. júní 2021. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir greinargerð um brunamál dags. 25. janúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. mars 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102484 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023434