framkvæmdaleyfi
Sundahöfn
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 704
9. nóvember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. nóvember 2018 var lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf. dags. 24. október 2018 ásamt bréfi dags. 24. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða vegna Sundahafnar. Í breytingunni felst að skilgreina tvo byggingarreiti á lóð Sægarða 9, stækka og breyta sérskilmálum fyrir lóð Sægarða A og gera nýjar lóðir fyrir dreifistöð Sægarðar 13 og spennistöð Sægarðar 17, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 15. október 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Visað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.

104 Reykjavík
Landnúmer: 219172 → skrá.is
Hnitnúmer: 10112520