(fsp) breyting á skilmálum deiliskipulags
Kirkjustétt 2-6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 666
26. janúar, 2018
Samþykkt
449957
449956 ›
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn M fasteigna ehf., mótt. 20. júlí 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina 2-6 við Kirkjustétt. Í breytingunni felst að upphaflegum byggingarreit er skipt í þrjú hús sem geta orðið 1 - 3 hæðir. Hluti bygginga innan reitsins geta því orðið allt að 3 hæðir í stað 2 áður. Bætt er við heimild til að gera íbúðir á 2. - 3. hæð húsa 1 og 2. Einnig er skilmálum um bílastæði breytt og bætt við skilmálum um frágang lóðar, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf., dags. 20. júlí 2017, br 30. ágúst 2017 og skýringaruppdrátt dags. 10. nóvember 2017. Einnig er lagt fram samþykki eigenda, mótt. 20. júlí 2017. Tillagan var auglýst frá 5. desember 2017 til og með 19. janúar 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

113 Reykjavík
Landnúmer: 188525 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092628