Breytingar
Lyngháls 7
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 666
26. janúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Arkís arkitekta ehf. f.h. Gæðabaksturs ehf. mótt. 23. október 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 7 við Lyngháls. Breytingin felst meðal annars í hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar, gerður er nýr byggingarreitur fyrir opinn tveggja hæða bílastæðapall sunnan megin við núverandi byggingarreit og að aðkomum frá Lynghálsi er breytt. Einnig að heimilt verði að staðsetja ýmis óveruleg mannvirki utan byggingarreits og yfir hámarkshæð svo sem opna útistiga, rampa og ytri tæknibúnað, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 20. október 2017. Tillagan var auglýst frá 5. desember 2017 til og með 19. janúar 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

110 Reykjavík
Landnúmer: 111042 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020082