(fsp) breyting á deiliskipulagi
Háskóli Íslands, Vísindagarðar
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 350
20. maí, 2011
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Ask Arkitekta dags. 11. desember 2009 f.h. Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. vegna breytinga á deiliskipulagi Háskóla Íslands vegna Vísindagarða. Í breytingunni felst m.a. að lóðinni er skipt upp í sjö lóðir fyrir Vísindagarða, Stúdentagarða og spennistöð Orkuveitu Reykjavíkur samkvæmt uppdrætti Ask Arkitekta dags. 23. mars 2010 ásamt greinargerð og skilmálum dags. 29. mars 2010. Einnig voru lagðir fram minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs dags. 9. júní 2010 af kynningarfundi vegna málsins sem haldinn var þann 3. júní sl. og bréf frá stúdentaráði Háskóla Íslands dags. 14. apríl 2011 þar sem lýst er yfir mikilli ánægju með deiliskipulagið. Tillagan var auglýst frá 16. mars til og með 2. maí 2011. Lagður fram tölvupóstur Jóns Sch. Thorsteinssonar dags. 20. apríl 2011 þar sem óskað er eftir að frestur til athugasemda verði framlengdur. Frestur var framlengdur til og með 10. maí 2011. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Þorkell Jóhannesson dags. 29. mars, Vigdís Finnbogadóttir ódags., Orkuveita Reykjavíkur, dags. 14. apríl 2011, Max Dager, f.h. Norræna hússins, dags. 2. maí, íbúar að Aragötu 7, dags. 8. maí, Pétur H. Ármannsson, dags. 9. maí, Helgi Björnsson og Þóra Ellen Þórhallsdóttir, dags. 10. maí, Helga Þorkelsdóttir og Páll Þorgeirsson, dags. 10. maí, Valgerður Hallgrímsdóttir og Jens A. Guðmundsson, dags. 10. maí, Baldur Símonarson dags. 10. maí, 2011, Snorri Bergmann og Védís Húnbogadóttirdags. 10. maí, Jón Sch. Thorsteinsson og Ragnheiður Harðardóttir dags. 10. maí og Jón Sch. Thorsteinsson f.h íbúa við Aragötu og Oddagötu dags. 10. maí ásamt fylgiskjölum: álitsgerð Ingibjargar Þórðardóttur fasteignasala, dags. 9. maí 2011 og álitsgerð Glámu-Kím, dags. 20. júní 2010. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 10. maí 2011.
Svar

Vísað til skipulagsráðs.