(fsp) breyting á deiliskipulagi
Háskóli Íslands, Vísindagarðar
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 350
20. maí, 2011
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2002-2024 dags. 9. desember 2010. Í breytingunni felst heimild um byggingu nemendaíbúða á svæði Vísindagarða við Háskóla Íslands. Einnig lagt fram bréf skipulagsstofnunar dags. 11. mars 2011 þar sem ekki er gerð athugasemd við að erindi verði auglýst. Jafnframt lagðar fram umsagnir Kópavogsbæjar dags. 16. febrúar, Seltjarnarnesbæjar dags. 24. febrúar, Mosfellsbæjar dags. 10. mars, umsögn Garðarbæjar dags. 22. mars 2011. Tillagan var auglýst frá 16. mars 2011 til og með 2. maí 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Þorkell Jóhannesson dags. 29. mars 2011, Snorri Bergmann og Védís Húnbogadóttir dags. 10. maí, Helgi Björnsson og Þóra Ellen Þórhallsdóttir dags. 10. maí, Jón Sch. Thorsteinsson fh. íbúa við Aragötu og Oddagötu dags. 10. maí, Jón Sch. Thorsteinsson og Ragnheiður Harðardóttir dags. 10. maí 2011 og Valgerður Hallgrímsdóttir og Jens A. Guðmundsson dags. 10. maí 2011.
Svar

Vísað til skipulagsráðs.