nýtt deiliskipulag
Hvassaleitisskóli
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 846
19. nóvember, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir Hvassaleitisskóla að Stóragerði 11A. Í tillögunni eru sýndar endurbætur er stuðla að auknu öryggi nemenda og starfsmanna skólans, bæði er varðar bætt aðgengi að skólalóðinni og bættri aðstöðu til leikja innan hennar. Færa á almennu bílastæðin (30 stk.) frá norðurhluta skólalóðar yfir á suðurhluta með nýrri aðkomu frá Brekkugerði sem er á borgarlandi. Stæði hreyfihamlaða (2 stk.) verða áfram á núverandi stað fyrir framan aðalinngang skólans. Deiliskipulagsmörk verða útvíkkuð og skólalóð verður stækkuð auk þess sem komið verður fyrir skólarútustæði og sleppistæði í Stóragerði. Nýjum byggingarreitum undir færanlegar kennslustofur og nýtt sorpgerði er komið fyrir innan skólalóðarinnar, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf. dags. 16. nóvember 2021.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.