(fsp) niðurrif húss og breyting á byggingarreit
Skúlagata 30
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 863
1. apríl, 2022
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. mars 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. mars 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja 5-6 hæða íbúðahótel í flokki ll, tegund e, með alls 39 íbúðum, bílakjallara og verslunar-og þjónusturýmum á 1. hæð í húsi á lóð nr. 30 við Skúlagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. apríl 2022.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 1. apríl 2022.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101120 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017756