Breytingar inni - Gististaður fl.2 teg.g 3-5 hæð
Laugavegur 105
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 863
1. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. mars 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. mars 2022 þar sem sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi 1.-5. hæða og kjallara. Í kjallara er komið fyrir geymslum fyrir allar íbúðir auk þvottahúss, á 1. hæð er komið fyrir hjólageymslu, sorpgeymslan er færð og gluggagat síkkað á suðausturhlið til að koma fyrir hurð inn í nýja sorpgeymslu, á 2. hæð er íbúðum fækkað úr 11 í 8, á 3.-5. hæð er komið fyrir 35 íbúðum ætlaðar undir rekstur á gististað í flokki II tegund g í húsi á lóð nr. 105 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. apríl 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. apríl 2022 samþykkt.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102974 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018235