skipulagslýsing vegna breytingu á aðalskipulagi
Kópavogur, Vatnsendahvarf-Vatnsendahæð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 864
1. apríl, 2022
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. mars 2022 var lagt fram bréf Kópavogsbæjar dags. 10. mars 2022 þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að nýju deiliskipulagi Vatnsendahæðar í Vatnsendahvarfi. Megintilgangur deiliskipulagsvinnunnar er að móta hverfi með vistvænum áherslum í samræmi við markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Deiliskipulagssvæðið er um 29 hektarar og liggur að mörkum Reykjavíkur, Kórahverfis og Hvörfum í Vatnsenda. Gert er ráð fyrir nýju íbúðahverfi með fjölbreyttu formi íbúða, leikskóla og útivistarsvæðum ásamt verslun- og þjónustu. Tillagan gerir ráð fyrir 500 íbúðum alls, þar af um 150-200 íbúðum í sérbýli, (einbýli, raðhús/parhús). Hámarkshæð bygginga er 3 hæðir auk kjallara. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.