skipulagslýsing vegna breytingu á aðalskipulagi
Kópavogur, Vatnsendahvarf-Vatnsendahæð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. desember 2019 var lagt fram erindi Kópavogsbæjar dags. 3. desember 2019 þar sem óskað er eftir umsögn á skipulagslýsingu dags. 11. nóvember 2019 vegna framkominnar tillögu um breytingu á gildandi aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og tillögu að deiliskipulagi sama svæðis. Í breytingunni felst í þróun á Fannaborgarreit og Traðarreit-vestur, fyrir þéttingu byggðar. Erindinu var vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn deildarstjóra aðalskipulags dags. 21. febrúar 2020.
Svar

Umsögn deildarstjóra aðalskipulags, dags. 21. febrúar 2020, samþykkt.