Reyndarteikningar
Baldursgata 24A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 827
2. júlí, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. júní 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að stærðir hafa verið uppfærðar, kalt þak hefur verið byggt ofan eldra þak bakhúss, mhl. 01, og því breytt í íbúðarrými, einnig hefur aðalinngangur verið færður til, stiga í forhúsi og innra skipulagi breytt í íbúðarhúsi, mhl. 02, á lóð nr. 24A við Baldursgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. apríl 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 19. apríl 2021. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 8. maí 2021 og húsaskoðun Byggingarfulltrúa dags. 6. maí 2021 og bréf frá hönnuði dags. 15. mars 2021. Stækkun: Mhl. 01, íbúðarhús: 7.9 ferm., 12.1 rúmm. Mhl. 02, bakhús: 13.9 ferm., 42.1 rúmm. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna íbúðarými í bakhúsi sem snýr að Válastíg og þegar gerða viðbyggingu og þaksvalir á suðurhlið forhúss fyrir hagsmunaaðilum að Baldursgötu 24 og 26 og Bragagötu 29a og 31/31b.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102238 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007561