Vest. 6-8. mhl.01. Svalir o.fl
Vest. 6-10A/Tryggv.18
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 739
16. ágúst, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. júní 2019 var lögð fram umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 27. maí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Naustareits vegna lóðarinnar nr. 6-10A við Vesturgötu. Í breytingunni felst að heimilt er að koma fyrir svölum á austurenda vesturgötu 6-8 og endurbyggja svalir með tröppum á Vesturgötu 10 sem teknar voru niður 2006 vegna framkvæmda. Heimilt er að gera ráð fyrir tveimur bílastæðum við austurenda Vesturgötu 6 og einu bílastæði við norðurenda Vesturgötu 10A, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 9. maí 2019. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 4. desember 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1231/2018.