breyting á deiliskipulagi vegna Tangarbryggju 6-8, 10, 12 og 12A og Naustabryggju 17-19 og 31-33
Bryggjuhverfi við Grafarvog
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 883
8. september, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis. Í breytingunni felst að skipulagssvæðið er stækkað til suðurs að mörkum Ártúnshöfða og til austurs að veginum Gullinbrú. Ástæða þess að skipulagssvæðið stækkar er fyrirhuguð dælustöð Veitna, en afmörkuð er lóð ásamt því að gerður er byggingarreitur fyrir dælustöð sem staðsett verður sunnan Sævarhöfða og vestan Gullinbrúar. Lagnabeltin verða tvö, annars vegar frá Ártúnshöfða og til norðurs að lóð dælustöðvar og hins vegar frá lóð dælustöðvar til vesturs. Aðkoma þjónustuumferðar að lóðinni verður frá núverandi einstefnu frárein frá Gullinbrú að Sævarhöfða, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 30. maí 2022. Tillagan var auglýst frá 21. júlí 2022 til og með 2. september 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.