breyting á deiliskipulagi
Barónsstígur 45A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 883
8. september, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Karls Magnúsar Karlssonar dags. 24. maí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 45A við Barónsstíg. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit Sundhallarinnar í austur fyrir viðbyggingu á tæknirými innilaugarinnar ásamt því að tengja núverandi tæknirými útilaugarinnar við umrædda stækkun neðanjarðar, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. VA arkitekta ehf. dags. 13. júlí 2022. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. maí 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. ágúst 2022 til og með 2. september 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Bergþór Þórisson formaður húsfélagsins Snorrabraut 56b, dags. 19. ágúst 2022.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

Landnúmer: 102530 → skrá.is
Hnitnúmer: 10005092