LED - ljósaskilti
Engjateigur - Suðurlandsbraut
Síðast Synjað á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 604
7. október, 2016
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. september 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta auglýsingaskilti úr flettiskilti í LED skjái á auglýsingaskilti Knattspyrnufélagsins Fram á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar. Einnig er lagður fram tölvupóstur Jónasar Snæbjörnssonar fyrir hönd Vegagerðarinnar dags. 6.október.2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 7. október 2016.
Gjald kr. 10.100
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 7. október 2016.
Samræmist ekki deiliskipulagi.