breyting á deiliskipulagi
Fiskislóð 37C og Hólmaslóð 1
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 604
7. október, 2016
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt 28. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar, Vesturhafnar Reykjavíkur, vegna lóðanna nr. 37C við Fiskislóð og 1 við Hólmaslóð. Í breytingunni felst sameining lóðanna nr. 37C við Fiskislóð og 1 við Hólmaslóð og ber sameinuð lóð heitið Fiskislóð 37C, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. ágúst 2016.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir gr. 7.6 og 12 í Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.