breyting á deiliskipulagi
Bíldshöfði 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 646
25. ágúst, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. ágúst 2017 var lögð fram fyrirspurn Brimborgar ehf. , mótt. 13. ágúst 2017, um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 8 við Bíldshöfða sem felst í stækkun á byggingarreit svo hægt verði að gera nýja innganga að norðanverðu, reisa smávörulagersturn að sunnanverðu og rúma áður gerðar breytingar við austurhlið innan byggingarreits, samkvæmt uppdrætti Gunnlaugs Johnson, dags. 16. maí 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. ágúst 2017.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2017.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110667 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008072