Breyta svölum, byggja nýjar, breyta í tvíbýli
Bragagata 34
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 569
15. janúar, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. desember 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. desember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að breyta einbýlishúsi í tvíbýlishús með því að gera nýja íbúð á 1. hæð, breyta stiga á bakhlið, endurnýja geymsluskúr á bakhlið, setja svalir á bakhlið (suðurhlið) ,stækka svalir á 2. hæð og setja svalir á rishæð í húsi á lóð nr. 34 við Bragagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. janúar 2016.
Jafnframt er erindi BN049369 dregið til baka og erindi BN048845 fellt úr gildi. Gjald kr. 9.923
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15, janúar 2016 samþykkt.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014.