Breytingar inni - endurgerð garðs
Bergstaðastræti 86
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 569
15. janúar, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. nóvember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja við bílskúr, síkka kjallaraglugga og grafa frá kjallara einbýlishúss á lóð nr. 86 við Bergstaðastræti. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. desember 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 11. desember 2015 til og með 8. janúar 2016. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. júlí 2015 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 21. október 2015. Einnig bréf hönnuðar þar sem grenndarkynningar er óskað dags. 19. nóvember 2015. Stækkun: 7,4 ferm., 17,3 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102709 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007102