breyting á deiliskipulagi vegna boltagerðis
Selásskóli, Selásbraut 109
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 348
6. maí, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 18. nóvember 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi Suður-Selás vegna lóðarinnar nr. 109 við Selásbraut. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir boltagerði við Selásskóla samkvæmt uppdrætti dags. 17. nóvember 2010. Einnig lögð fram ný tillaga dags. 3. febrúar 2011, þar sem gert er ráð fyrir stærri boltagerði en í áður auglýstri tillögu. Auglýsingin stóð yfir frá 14. mars 2011 til og með 26. apríl 2011. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar