breyting á deiliskipulagi
Sóltún 2-4
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 348
6. maí, 2011
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 29. apríl 2011 var lögð fram fyrirspurn Öldungar hf. dags. 18. apríl 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna lóðarinnar nr. 2-4 við Sóltún. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni ásamt breytingu á bílastæðum, samkvæmt uppdrætti Nexus arkitekta dags. 14. apríl 2011. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 5. maí 2011.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Tillagan verður auglýst þegar hún berst.

105 Reykjavík
Landnúmer: 191884 → skrá.is
Hnitnúmer: 10066166