framkvæmdaleyfi
Víðidalur, Fákur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 628
7. apríl, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Finns Kristinssonar, mótt. 8. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Víðidals, Fáks. Í breytingunni felst m.a. að stækka byggingarreit norðan við félagsheimili, setja byggingarreiti fyrir hesthús austan við félagsheimili og norðan og sunnan við Ásból, stækka byggingarreit núverandi reiðhallar, útbúa lóð með byggingarreit fyrir fjölnota hús/reiðhöll fyrir austan og ofan Hvammsvöll o.fl., samkvæmt uppdr. Landslags ehf., dags. 5. janúar 2017. Tillagan var auglýst frá 15. febrúar til og með 29. mars 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar