breyting á deiliskipulagi
Hamrahlíð 2, Hlíðaskóli
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 876
7. júlí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Hörgshlíðar vegna lóðarinnar nr. 2 við Hamrahlíð, Hlíðarskóla. Í breytingunni felst að skilgreindur er byggingarreitur fyrir færanlegar kennslustofur sem ráðgert er að staðsetja á norðurmörkum lóðar meðfram Hamrahlíð norðan við núverandi battavöll, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta dags. 18. maí 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 3. júní 2022 til og með 4. júlí 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107330 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012346