breyting á deiliskipulagi
Holtavegur 23, Langholtsskóli
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 729
24. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 7. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heimahverfis vegna lóðarinnar nr. 23 við Holtaveg. Í breytingunni felst að stækka núverandi byggingarreit fyrir færanlegar kennslustofur á austurhluta lóðarinnar og gert er ráð fyrir allt að sex kennslustofum á reitnum, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 6. mars 2019. Tillagan var auglýst frá 5. apríl 2019 til og með 21. maí 2019. Engar athugasemdir bárust
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.