Aðflugsljós við enda flugbrautar 13
Flugvöllur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. júlí 2018 var lögð fram umsókn Hermanns Georgs Gunnlaugssonar dags. 28. júní 2018 um framkvæmdaleyfi vegna breytingu á þjónustuaðkomu að flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli og að Fluggörðum frá Njarðargötu og úrbóta á núverandi bílastæðum, malbika stæðin og fegra lóðina ásamt því að setja upp gjaldheimtu á bílastæðunum. Einnig er lögð fram greinargerð Teiknistofunnar Storðar ehf. dags. 28. júní 2018 og uppdrættir dags. 20. júlí 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. ágúst 2018. Lagt fram að nýju ásamt umsókn Hermanns Georgs Gunnlaugssonar dags. 9. júní 2021 og bréfi dags. 9. juní 2021 um endurnýjun á framkvæmdaleyfi. Einnig eru lagðir fram uppdrættir teiknistofunnar Storðar ehf. dags. 25. júní 2013, 25. maí 2017 og 20. nóvember 2021 og uppdráttur Isavia dags. 12. maí 2017.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

Landnúmer: 106746 → skrá.is
Hnitnúmer: 10089795