Breyting - svalir + bílskúr
Kleifarvegur 14
Síðast Samþykkt að grenndarkynna á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að grafa frá suðurhlið bílskúrs og breyta honum í vinnustofu, gera nýja glugga og hurðir, fjarlægja milligólf og breyta innra skipulagi, einnig er handrið á svölum íbúðarhúss hækkuð til samræmis við byggingareglugerð, hurðarop út á svalir fyrstu hæðar stækkað og hurð breytt í rennihurð í einbýlishúsi á lóð nr. 14 við Kleifarveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 3. maí 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Kleifarvegi 12, 13 og 15 og Laugarásvegi 21 og 23.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104763 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013184