(fsp) gistiaðstaða
Öldugata 27
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 509
26. september, 2014
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ástu Roth f.h. stjórnar Reykjavík International School dags. 7. júlí 2014 ásamt greinargerð, dags. 30. júní 2014, þar sem óskað er eftir heimild til að starfrækja grunnskóla í húsnæðinu að Öldugötu 27. Einnig lagður fram uppdráttur Glóru, dags. 7. júlí 2014. Einnig er lagt fram bréf stjórnarformanns Reykjavík International School dags. 10. júlí 2014. Erindi var grenndarkynnt frá 16. júlí til og með 13. ágúst 2014. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Anna Lilja Guðmundsdóttir dags. 11. ágúst 2014, Lárus Valgarðsson dags. 13. ágúst 2014, Guðmundur Bjarki Guðmundsson dags. 13. ágúst 2014 og listi 52 íbúa við Öldugötu, Stýrimannastíg og Marargötu mótt. 13. ágúst 2014. Einnig er lagður fram tölvupóstur Ástu V. Roth f.h. stjórnar Reykjavík International School dags. 15. september 2014 þar sem umsókn er dregin til baka.
Svar

Umsókn dregin til baka sbr. tölvupóstur umsækjanda dags. 15. september 2014.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100649 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017045